Viđvörun!! stundarbrjálćđismóđursýkisástand!!
Fór til dæmis út í pósthús í gær með hrúgu af pökkum og drasli sem þurfti að fara á allavega 5 mismunandi staði og talandi við Fríðu á meðan. Þegar svo kom að því að sýna skilríki þá mundi ég ekki hvað ég hét eða hvers lensk ég væri. Alveg bara jaaaaáááá ertu frá íslandi vinan og ég bara haaa öööö me no comprehenda. Svo hleypur Kittið af stað að flýta sér að borga reikninga, kaupa bleyjur, kaupa mat, fara niðrí kommun, heim, aftur niður í kommúnu, hafa áhyggjur af mjólkurleysi, kaupa þurrmjólk sem hún gleymdi, snúa við því hún gleymdi að kaupa ost, fara heim, fara aftur út að skila spólum, koma svo aftur heim. þrífa fullt af drasli á þessum fínu háhæluðu skóm og snéri mig einhverstaðar í þessum hrærigraut. Hringja og rífast eitthvað útaf netinu reyna að klóra sig fram úr helvítís rafmagnsreikning, hringja í lækni, ganga af göflunum útaf heimskum rafmagnsreikning, vesenast með þennan drulluógeðs danske bank netservice, svo er allt í einu miðvikudagur og ástand bara 2% skárra...
Svo þarf ég alltaf að vera að pota í litlu skvísuna mína því ég er alltaf svo hrædd um að hún sé barasta hætt að vera á lífi. Er viss um að Dísa litla myndi bíta af mér nokkra fingur fyrir allt þetta helvítis ónæði ef hún væri með tennur. En kittan er svo hræðilega móðursjúk og bremsulaus....
En Eydís hefur það samt annars mjög fínt er alltaf kát og glöð. Er orðin alger hlunkur og ofboðslega dugleg að skjótast eins og fiskur á bakinu, skoða hendur og fætur og gera foreldra sína kolvitlausa af svefnleysi og harðsperrum. Hún líka er líka voðalega dugleg að grípa dót og rífa og slíta eins og hún fái borgað fyrir það. Svo náði duglega stelpan að gubba rosa flott:) áaallri mjólkinni sinni og miðaði beint á rassinn á pabba sínum sem svaf eins og ungabarn þrátt fyrir þetta og þó að ég væri að reyna að þrífa botninn á honum eins harkalega og ég gat. öfunda hann af að sofa svona fast!!
Spurning hvort að það komi eitthvað vit í Kittið nokkurntíma....

Eydís junior að pjakkast
Kitta mamma
Það gekk allt eins og í lygasögu með að koma henni í heiminn og allt það en auðvitað þurfti ég að verða eitthvað vangefin og leggjast inn í smátíma. Alveg ógeðslega týpískt fyrir mig. En svo fékk ég að fara heim og vera vangefin þar.
Fríða kom í heimsókn til mín
Er samt alveg viss um að ég geri þetta ekki aftur á næstunni... Klofið á mér var svo bólgið að mér leið eins og ég væri með pung!!
Tengdó kom líka í heimsókn´og ég fékk ekki að sjá stelpuna á meðan nema rétt til að gefa henni að borða. Sú gamla var meira að segja að pæla í því að stela barninu úr höndunum á mér um leið og ég sofnaði. Fegin að hún sleppti því, nógu mikið sjokk að vera nýbökuð mamma þó það það þurfi ekki að bætast við að krakkinn hyrfi skyndilega... Hugsa að ég fengi barasta áfall
Æjjá ætli það sé ekki best að láta það fylgja hvaða nafn ormurinn minn fékk. ákváðum að vera ekkert að vesenast með skírn eða neitt þannig en sú litla var nefnd Eydís Ósk Eiðsdóttir, hún getur svo bara fengið að ráða því sjálf þegar hún verður stærri hvort hún lætur skíra sig eða whatever.... eða var skíra með Ý? skýra... skíra.... garg ég er byrjuð að ruglast svo mikið á í og ý.
Ma og pa fengu sér aðra kisu:) Hún heitir Lína og Væla er alveg sátt við að hafa hana. Lína er líka fínasta barnapía
Tvíburarnir eru að fara í efterskole eftir minna en tvær vikur
látum þetta duga í bili!
Ciao
Newsflash
Við erum búin að koma okkur nokkuð vel fyrir í nýju íbúðinni. Erum enn að vandræðast smá með hirslupláss en það leysist vonandi fjótlega. Tvíburarnir fluttu svo til okkar í lok maí. Það hefur gengið alveg furðulega vel, enda eru þau fegin að losna smá við mömmu og pabba:) Eiður er líka búinn að vera duglegur að stríða þeim og taka aðeins í þau
Þá er búið að versla næstum allt fyrir litla krílið sem er að koma. Ég verð að gefa Eið nokkur prik fyrir frammistöðuna í verslunarferðinni. Hann stóð sig ekkert smá vel. Hann tók alveg stjórnina á hlutunum og var ofboðslega áhugasamur og sá alveg til þess að þetta gengi hratt og örugglega fyrir sig. Er alveg að springa ég er svo ánægð með hann
Svo keypti ég mér glænýja þvottavél! ég þarf ekki lengur að fara til mömmu með gámafarm af þvotti og vera með fullt af veseni í kringum þetta ooooog ég get átt hrein föt þegar mér sýnist! Ekkert smá lúxuslíf það! Ég er orðin svo svaka mikil húsmóðir
Ég sakna svoooo Hildar og Lilju og Fríðu. Það er svo geðveikt mikið sem við mundum gera (eða ekki gera) ef að þið væruð hérna. En Fríða er að koma núna bráðum til mín og það er svolítil sárabót! Hlakka svoooo til!!
Prinsessan í höllinni:D:D
Það er orðið bilað heitt hérna!! ég er alla daga að reyna að stilla mig um að rífa mig úr húðinni eða reyna að sleppa því að pakka mér saman til að komast í frystinn. Ef einhver villl vera svo góður að senda mér smá snjó eða bara nokkur vindstig þá væri það vel þegið því ég held að ég hafi óvart gengið í gegnum sex hlið...
En já.... núna er ég svo upptekin af því að svitna eins og stór skammtur af frönskum að ég veit ekkert hvað ég á að segja meir... ætla að reyna að komast oftar til að stela interneti
hasta la vista hombres
DJ Eydz og Kittz
Hæhæ Eydís og Kitta hérna. Erum bara tvær að ditza fólk og flýja uppí sveit. Eníveis þá erum við mikið að spá í eurovision núna. Tjékk ðis át
Við erum búnar að ákveða hvaða lag við ætlum að kjósa þetta árið
http://www.youtube.com/watch?v=_dNB4g0AcH8
Sjitt hvað þau eru ógeðslega að drepast úr töffness!!!Erum sko alveg að missa okkur yfir búningunum hjá dönsurunum á bakvið!!
Svo erum við líka búin að finna nokkur uppáhaldslög í eurovision sem við getum aldrei gleymt
http://www.youtube.com/watch?v=pZ8xTD-Nr_o
HAhahaha voða sætur snúður að syngja dúllumús:p
http://www.youtube.com/watch?v=4s2TfNlJ_nQ
Ahhh Bara snilld:p Her af zombie klappstýrum og allur pakkinn. Gerist ekki meira töff
http://www.youtube.com/watch?v=eX_rNEPIgc8
Þetta vantaði bara í eurovision... Gaur sem er hræddur við gervihnetti!!!
Svo eitt heimskulegasta lag sem við höfum nokkurntíma heyrt!!!
http://www.youtube.com/watch?v=0TgMQSaCfG4
Vá ekkert smá stuð að vera dauður marr!!
Og svo muna auðvitað allir eftir þessum horbjóði!!!
http://www.youtube.com/watch?v=lXcnq1rymmw
Við kunnum bæði íslenska og enska textan utanað
Vá hvað við vorum laaame!!!!
Over and out![]()
(setjiđ sjálf inn frumlega fyrirsögn)

Ég var búin að lofa Jóa bróður að birta þessa mynd fyrir hann:)
Þetta er hann Pétur frændi okkar orðin svolítið þreyttur á honum Jóa
Er ekkert ógurlega hissa á því:D
Annars virðast tvíburarnir vera í einhverri krísu um hver þau eru og hvaðan þau koma....
Mamma og pabbi voru að spá í að eignast fleiri börn. Svona ákvarðanir er mjög erfitt að taka og þau vildu ekki hvaða barn sem er. Eftir miklar vangaveltur þá ákváðu mamma og pabbi að fara í hundabyrgið til að velja systkini handa mér
Það var úr miklu að velja og við gengum marga hringi áður en við fundum rétta barnið. Við tókum ekki alveg strax eftir því vegna þess að það sat bara og beið eftir að við sæjum það og vildi ekki troða hinum börnunum um tær. Í staðinn fyrir að gjamma og biðja sat þessi litla stúlka þolinmóð og beið eftir að röðin kæmi að sér.
Þarna var komið draumabarn mömmu og pabba. Steinþegjandi og alveg með afburðum þægur krakki.
Nafnið var ákveðið á leiðinni heim. Eydís Ósk var hún látin heita af því að það þýðir álfadís óskabarn. En þetta var ekki búið onei! Við vorum að keyra framhjá ruslahaugunum þegar pabbi snarstoppar... Einhver vera hafði skriðið uppá veginn og horfði nú biðjandi á pabba. Við stigum útúr bílnum til að skoða þetta nánar. Þetta leit út fyrir að vera einhvurslags skunkaungi sem greinilega hafði týnt mömmu sinni. Pabbi hefur aldrei getað staðist svona biðjandi augu þannig að hann fékk að eiga hann
Hér hafiði það Tvíburar! Þið getið aldrei búist við að mamma og pabbi segi ykkur satt en það geri ég alltaf!
Séđ međ augum Kittu

Þetta vill Pétur frændi meina að sé ég.... En ég er eiginlega á því að við Pétur séum tvíburar IN YOUR FACE GAMLI!!!

Þessa fígúru hafið þið aldrei séð áður.... hérna hafiði tengdaskrímslið taddararaaaa!!!

That's all for you 25 cents folks!!!
Tvífarar ársins 2008 hahahaha

Þetta Madaleine mál er eitthvað klikkað sko!!!! Vona bara Nick Cave vegna að hann hafi ekki verið að ferðast í portúgal á síðasta ári
Hej alle sammen!
Svo Komst maður loksins til noregs og upp í rúm!!!
Noregur er ekkert ósvipaður íslandi... Allt er mjög dýrt hérna og allir í lífsgæðakapphlaupi. Nema hér eru ekki ofurfeministar og fólk fær skikkanleg laun hér miðað við hvað allt kostar hér.
Svo skrapp maður til Svíþjóðar í gær að versla. Helvíti fínt bara
Annars neyðist ég svo til að hitta mann sem ég var að vona við að vera laus við á jólunum....
Nýja Kitta?
Hver er Kitta? Það er nú stóra spurningin í dag hitti ég konu sem vissi sko allt miklu betur en ég um hver ég væri og hvaðan ég kæmi. Þessi vitra kona sannaði í dag að þrjóskan í fólki á sér engin takmörk. Niður á ráðhúsi var einhver sem ákvað það að ég heiti Sristín Anna Jóhannsdóttir, sænsk og átti heima í Silkeborg. Eina í upplýsingunum frá ráðhúsinu um mig sem ég kannaðist eitthvað við var símanúmerið mitt, sem var hringt í nokkuð áður til að fullvissa sig um að nafnið mitt væri skrifað með C
Ég kem þarna niður eftir alveg græn og segist ætla að leiðrétta smá misskilning. Ha hvaða misskilnig? Var spurningin sem ég fékk. Vitringurinn var stóð fast við það sem upplýsingarnar sögðu henni. Semsagt Sristín er einhver gella sem lítur út alveg eins og ég og er með sömu kennitölu og ég. Mér fannst nú Lang ótrúlegast að hún trúði mér ekki þegar ég sagðist bara vera Kristín frá Íslandi. Samt sýndi ég henni passa og sygesikringskort. Þá sagði ég bara við hana að hún gæti bara sjálf heitið Sristín og bauð henni að tala við pabba minn sem beið eftir mér úti. Ef einhver ætti að geta útklkáð það mál þá er það minn elskaði faðir sem ég er víst svo afskaplega lík. Vitringurinn sneri bara upp á sig og ég heimtaði bara að gera nýja umsókn. Ég fékk sko vilja mínum framgegngt og þegar ég skilaði umsókninni þá var gamla frú veitallt búin að gera frekari bakgrunns rannsóknir á mér og hóstaði upp aumingjalegu fyrirgefðu.
Er þetta málið? Spáið í hvað kellinginn var búin að heilaþvo sjálfan sig. Alveg handviss um að hún hefði alltaf rétt fyrir sér og gæti ekki gert mistök. Svo varð hún svo fúl við mig þegar ég var að springa úr hlátri.
En já konugreyið made my day
Nú er bara spurningin hvað verður um jólakortin mín:)
